loader image

Fullveldisdagurinn

Gleðilegan fullveldisdag. Það er ekki sjálfgefið að heimsækja eldri ættingja sína í dag, en það er óhætt að hringja. Munið að taka fánann niður á lögboðnum tíma. Annars eru sóknargjöld næsta árs reiknuð út miðað við skráningu fólks 1. desember árið á undan. Þannig að ef þið hafið verið að hugsa um að skrá ykkur […]

Styrkur til Pieta

DíaMat styrkti Pieta-samtökin um 125.000 krónur á dögunum. Þau stunda forvarnir gegn sjálfsvígum og sjálfskaða og styðja einnig við aðstandendur. Þessi styrkur er sá fjórði sem DíaMat veitir í haust. Önnur samtök sem við höfum styrkt eru Hugarafl, Drekaslóð og Solaris. Þau hafa öll fengið sömu upphæðina. Styrkir DíaMats eru greiddir af þeim tekjum sem […]

Styrkur til Drekaslóðar

DíaMat var að færa Drekaslóð styrk að upphæð kr. 125.000 til að styðja við þeirra góða og þarfa starf. Þetta er þriðji styrkur haustsins. Áður hafa Hugarafl og Solaris flóttamannahjálp fengið sömu upphæð að styrk. Þessir peningar koma af fjárhæðinni sem íslenska ríkið greiðir DíaMat í sóknargjöld vegna fólks sem er skráð í félagið hjá […]

Styrkur til Solaris

Í gær veitti DíaMat annan styrk haustsins, að upphæð 125.000 kr. Viðtakandinn var Solaris, hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi. Peningarnir koma af því fé sem íslenska ríkið greiðir DíaMat í sóknargjöld, fasta upphæð fyrir hvern sem er skráður félagi. Það er fljótlegt og einfalt að skrá sig á island.is ef maður á rafræn […]

Styrkur til Hugarafls

Í gær mánudag færði DíaMat Hugarafli styrk að upphæð 125.000 krónur. Sá styrkur er veittur án neinna skilyrða, en með hugheilum baráttukveðjum. Við styrkjum góðan málstað sem er valdeflandi fyrir alþýðufólk og mun í fyllingu tímans styðja samtök alþýðunnar í að koma á betra og réttláta skipulagi í þjóðfélaginu. Síðasti aðalfundur DíaMats samþykkti að verja […]

Jafndægur á hausti

DíaMat óskar jarðarbúum öllum gleðilegra jafndægra á hausti. Í dag dreifist sólarljósið jafnt um alla jörðina. Hugleiðið það aðeins. Hvað ef efnislegum gæðum, tækifærum og hamingju væri skipt jafnt?

Verkalýðurinn og COVID: díalektísk stund

Drífa Snædal, forseti ASÍ, kemur, segir frá og ræðir við fundargesti um áhrif COVID-19 á verkalýðshreyfinguna og baráttu hennar og störf.Þriðjudagskvöldið 2. júní 2020 klukkan 20:00Friðarhúsi, Njálsgötu 87Allir velkomnir sem virða smitgát og eru að öðru leyti húsum hæfir.

Fundur þriðjudagskvöld

Þriðjudagskvöldið 12. maí heldur DíaMat fund um starf næstu mánaða. Þetta er díalektísk stund en um leið opinn stjórnarfundur.Lóðarumsókn félagsins verður rædd og tekin ákvörðun um nlsta skref. Eindregið er mælt með því að fólk sem vill taka þátt í þeirri unræðu, verði búið að lesa úrskurð Umboðsmanns Alþingis frá 6. apríl áður en fundurinn hefst.

Gleðilegt sumar

DíaMat óskar öllum gleðilegs sumars.Vegna COVID-19 hefa fundir DíaMats legið niðri undanfarið, eins og flest annað, og ekki er ljóst hvenær við höldum næst fund. Við höfum verið vön að bjóða börnum og fullorðnum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn á sumardaginn fyrsta (því þá eiga dýrin afmæli) en það verður líka að biða betri tíma.

Gleðileg vorjafndægur

DíaMat óskar öllum jarðarbúum gleðilegra vorjafndægra, en í dag er annar tveggja daga ársins þar sem sólarljósinu er deilt jafnt á alla jörðina.