Díalektísk messa á Fundi fólksins
DíaMat verður öðru sinni þátttakandi í Fundi fólksins, sem í ár er haldinn í Hofi á Akureyri: Díalektísk messa í salnum Setbergi kl. 14:00-14:50 á laugardaginn, 9. september. Þar eð þessi messa verður einkum haldin í kynningarskyni mun hún að mestu snúast um díalektíska efnishyggju sem slíka, sem og starf félagsins. Boðið verður upp á […]
Díalektísk útimessa á Menningarnótt
DíaMat verður með viðburð á Menningarnótt: díalektíska útimessu. Hún mun standa frá kl. 13 til kl. 14 og verður á Arnarhóli, við jaðar róluvallarins. Á díalektísku útimessunni mun forstöðumaður DíaMats segja frá félaginu og starfsemi þess, en einkum frá díalektískri og sögulegri efnishyggju. Að framsögu lokinni verða frjálsar, fjörugar og fróðlegar umræður sem hafa þann […]
Díalektísk messa þriðjudag 27. júní
Þriðjudagskvöldið 27. júní kl. 20 verður næsta „messa“ DíaMats. Að þessu sinni verður litið meira í eigin barm en í undanförnum messum, þar sem efni kvöldsins er sjálft félagið, tilgangur þess og starfsemi og hvað er framundan næstu misserin. Vésteinn Valgarðsson opnar umræðuna með hugvekju, síðan taka við almennar umræður um efnið. „Messan“ […]
Gleðilegar sumarsólstöður
DíaMat — lífsskoðunarfélag um díalektíska efnishyggju býður gleðilegar sumarsólstöður og hvetur til að þeim sé fagnað með vinum eða fjölskyldu á viðeigandi hátt.
Rússneska byltingin I
Félagið DiaMat stendur fyrir díalektiskri messu þriðjudaginn 30. maí kl. 20 í Friðarhúsi, Njálsgötu 87. Þorvaldur Þorvaldsson flytur erindið „Rússneska byltingin I“ og fjallar um ýmsar spurningar varðandi fyrri hluta byltingarferlisins í Rússlandi fyrir 100 árum. Framhald er væntanlegt síðar á árinu. Heitt á könnunni og allir eru velkomnir.
Viðtal við Véstein Valgarðsson, forstöðumann DíaMats
Þetta viðtal birtist á vefritinu Tíðin.is á dögunum. Lífsskoðunarfélagið DíaMat er nýjasta viðbótin í trúfélaga og lífskoðunarmenningu landsins. Við hjá Tíðinni fengum Véstein Valgarðsson forstöðumann félagsins til að svara nokkrum spurningum um félagið. Hvernig fæddist hugmyndin að stofnun Díamat?Ég skráði mig í Siðmennt fyrir löngu síðan, bæði til að vera með í henni sem samfélagi […]
Víetnam á sunnudag, fyrsti maí á mánudag
Næstkomandi sunnudag, 30. apríl, heldur DíaMat — félag um díalektíska efnishyggju díalektíska messu í tilefni af því að 42 ár verða liðin frá því Víetnamar hröktu Bandaríkjaher af höndum sér, frelsuðu Saigon og hrósuðu sigri í þjóðfrelsisstríði sínu. Af því tilefni ætlar Sveinn Rúnar Hauksson læknir að segja frá Víetnamnefndinni og samstöðubaráttunni með Víetnam, sem […]
Jafndægur á vori
Í dag er annar tveggja daga á árinu, sem sólarljósinu er jafn skipt milli allra, sama hvar þeir búa á jörðinni. Því ber að fagna. Einnig er hægt er að láta það verða sér innblástur til að vinna að því að lífskjörum verði einnig skipt jafn milli fólks, sama hvar það býr á jörðinni. Væri […]
Á morgun: Parísarkommúnan
Þann 18. mars árið 1871 var Parísarkommúnan stofnuð. Með henni tók alþýðan ríkisvaldið í sínar hendur í fyrsta sinn í nútíma og gaf tóninn fyrir baráttuna sem ennþá stendur: fyrir því að alþýðan taki forræði yfir sjálfri sér.Átjándi mars er einn þeirra daga sem DíaMat heldur í heiðri og getur auðvitað hver minnst Kommúnunnar á […]
Áttundi mars
Í dag er áttundi mars, alþjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti.Klukkan 17 í dag verður haldinn baráttufundur í Iðnó í tilefni dagsins. Sjáumst þar!