Styrkveitingar frá DíaMat 2024
Árlega veitir DíaMat fjárstyrki til félaga og samtaka sem eru valdeflandi fyrir alþýðufólk. Alls veitti félagið eina milljón í styrki til félaga í ár en það voru Ljósið, Píeta samtökin, Réttur barna á flótta og Solaris, sem hvert um sig fékk 250.000 krónur í sinn hlut frá DíaMat. Einnig veittum við rannsóknarstyrk upp á 200.000 […]
DíaMat styrkir Ljósið og Rétt Barna á Flótta
Á dögunum veitti DíaMat 250.000 í styrk til Ljóssins og 250.000 til Rétt barna á flótta.Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess. Réttur barna á flótta bjóða upp á stuðning, lögfræðilegan og félagslegan, við börn og barnafjölskyldur sem þurfa að leita réttar síns í samræmi við Barnasáttmála Sameinuðu […]
107 ár frá októberbyltingunni í dag
Gleðilegan byltingardag, kæru félagar. 107 ár eru síðan bolsévíkar lögðu hald á Petrograd, sem varð neistinn að október byltingunni. Sigur þeirra virkar sem merki fyrir heimsbaráttuna gegn ofríki auðmagnsins, fyrir frelsun mannkyns frá örbirgð, og félagshyggju í raungerð. Á morgun skín maísól.
DíaMat veitir umboð til hjónavígslu
Um helgina veitti lífsskoðunarfélagið DíaMat sjö manns umboð til að gefa saman hjón í nafni félagsins. Það eru þau Alina Vilhjálmsdóttir, Ingibjörg Ingvarsdóttir, Karl Héðinn Kristjánsson, María Hjálmstýsdóttir, Siggeir F. Ævarsson, Þorvaldur Þorvaldsson og Þorvarður Bergmann Kjartansson. DíaMat er skráð lífsskoðunarfélag um díalektíska efnishyggju (heimspeki marxismans) sem stofnað var árið 2015 og fékk skráningu hjá […]
Gleðilegan alþjóðlegan baráttudag kvenna fyrir friði og jafnrétti
Stjórn DíaMat sendir samstöðu- og baráttukveðjur til allra verkakvenna um heiminn. Drýgjum dáð fyrir andlegu og efnislegu frelsi alls kvenfólks og fyrir frjálsri Palestínu í okkar lífstíð. March 8th International Women’s Day The Palestinian woman: the guardian of the dream and the shield of the revolution“ (Popular Front for the Liberation of Palestine, 2024)
Stjórn DíaMats 2024
Á síðastliðnum aðalfundi var stjórn DíaMats endurkjörin óbreytt. Verkaskipting stjórnar í ár er sem stendur Forstöðumaður: Vésteinn ValgarðssonVaraformaður: Ingibjörg Ingvarsdóttir Ritari: Þorvaldur ÞorvaldssonGjaldkeri: Siggeir F. ÆvarssonMeðstjórnandi: Karl Héðinn Kristjánsson
Hæstiréttur hafnar áfrýjunarbeiðni okkar
Hæstiréttur hefur hafnað beiðni okkar, DíaMats – félags um díalektíska efnishyggju, um áfrýjunarleyfi í máli félagsins á hendur Reykjavíkurborg. Þessi úrskurður er að sjálfsögðu vonbrigði fyrir okkur og félagið mun fara yfir stöðuna áður en það bregst frekar við.
Af aðalfundi í ár
Helstu fréttir af aðalfundi DíaMats sunnudaginn 11. febrúar sl. eru að stjórnin helst óbreytt. María Hjálmtýsdóttir var samþykkt í öldungaráð félagsins. Skoðunarmenn reikninga verða áfram Árni Daníel Júlíusson og Skúli Jón Unnarson.Fyrir aðalfund var haldin díalektísk stund með Viðari Þorsteinssyni, allir yfirgáfu þá stund fróðari um Antonio Negri og mergð ítalskra kommúnista í lífstíð Negris.Önnur […]
Aðalfundur DíaMats 11. febrúar
Kæru félagar, aðalfundur DíaMats verður haldinn í MÍR-salnum, Hverfisgötu 105 sunnudaginn 11. febrúar 2024 klukkan 15:00. Atkvæðisrétt og kjörgengi eiga allir sem skráðir eru í félagið. Hægt er að skrá sig á staðnum.Hver sem hefur skráð sig eftir 1. desember 2023, þarf að sýna fundarstjóra sannindamerki þess til að hafa full réttindi á fundinum.Boðið […]
Díalektísk stund: Viðar Þorsteinsson fjallar um Antonio Negri
Antonio Negri: Ferðalag baráttunnar frá verksmiðjum Ítalíu til hnattvædds kapítalisma sunnudaginn 11. febrúar klukkan 13:45, MÍR-salnum, Hverfisgötu 105 Viðar Þorsteinsson fræðslu- og félagsmálastjóri hjá Eflingu ræðir um lífshlaup og kenningar ítalska fræðimannsins Antonio Negri, sem lést í lok síðasta árs. Sagt verður frá ferðalagi Negris innan evrópska nýja vinstrisins og áhrifamiklum kenningum hans og Michaels Hardt um […]