Fögnum breytingum og styðjum hvert annað

DíaMat heldur díalektíska „messu“ þriðjudaginn 28. febrúar kl. 17:00 í Friðarhúsi, Njálsgötu 87 (horni Snorrabrautar). Ólafur Grétar Gunnarsson fjölskylduráðgjafi hefur framsögu: Fögnum breytingum og styðjum hvert annað Ólafur GrétarGunnarsson Verðandi foreldar leggja línurnar fyrir betra samfélagi með því sækjast eftir stuðningi og fræðslu, við hin með því að svara kallinu og styðja við bakið á […]

Af aðalfundi DíaMats

Aðalfundur DíaMats var haldinn laugardaginn 28. janúar. Á honum var stjórn endurkjörin. Lög félagsins hafa verið löguð að nýju hlutverki þess sem skráð lífsskoðunarfélag. Samþykkt var að fella niður félagsgjöld og hætta að halda sérstakt félagatal áhugamannafélagsins DíaMats. Í þess staðverður yfirlit frá Þjóðskrá Íslands notað sem félagatal. Auk þess hefur Öldungaráð DíaMats verið sett á […]

Aðalfundur 28.1.

Aðalfundur DíaMats verður haldinn 28. janúar. Aðalfundarboð hefur verið sent út. Félagar sem ekki eru á póstlista en vilja fá fundarboð gefi sig fram.

Byltingardagatal 2017

Byltingardagatal fyrir árið 2017 er komið út, í tilefni af 100 ára afmæli októberbyltingarinnar, tekið saman af Vésteini Valgarðssyni. Að útgáfunni standa Alþýðufylkingin, DíaMat, Menningar- og friðarsamtökin MFÍK og Rauður vettvangur. Þetta eigulega og fróðlega dagatal kostar 1500 kr. og fæst í bókabúðinni Sjónarlind á Bergstaðastræti og hjá félögunum sem gefa það út.

Vetrarsólstöður

Í dag, 21. desember, eru vetrarsólstöður. DíaMat fagnar hækkandi sól og hvetur alla til að halda daginn hátíðlegan, sem og næstu daga. Þótt vetrarsólstöður séu ekki fánadagur að lögum er ekki í vegi að spyrja: Hví ekki að flagga?

Gleðilegan fullveldisdag

DíaMat – félag um díalektíska efnishyggju óskar öllum landsmönnum gleðilegs fullveldisdags. Gleymið ekki að draga niður fánann á tilskildum tíma. Í kvöld: fimmtukvöld 1. desember – verður félagið með samkomu í MÍR-salnum, Hverfisgötu 105, kl. 20:30. Þar verður til umfjöllunar fullveldið í ljósi díalektískrar og sögulegrar efnishyggju. Framsögumaður: Vésteinn Valgarðsson.

DíaMat skráð sem lífsskoðunarfélag

Fyrir viku barst forstöðumanni DíaMats bréf þess efnis að yfirvöld hafi skráð félagið sem lífsskoðunarfélag, í samræmi við lög nr. 108 1999 um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög. Það þýðir að forstöðumaður hefur leyfi til að gefa fólk saman í hjúskap og að ríkissjóður mun borga félaginu sóknargjöld fyrir hvern þann sem skráður er í það […]

YFIRLÝSING DÍAMATS

SAMÞYKKT Á STOFNFUNDI DÍAMATS 22. APRÍL OG LÍTIÐ BREYTT AF FRAMHALDSSTOFNFUNDI 16. OKTÓBER 2015 Efnisheimurinn er einn og óskiptur og hulduheimar eru ekki til, upphaf vitundarinnar er í efninu, engin vitund getur verið aðskilin frá efnislegum skilyrðum sínum, vilji mannsins er aldrei frjáls heldur alltaf skilyrtur af efnislegum og félagslegum kringumstæðum hans og þeirri sögu […]

Nýtt blogg DíaMats

Þetta er bloggsíða DíaMats – félags um díalektíska efnishyggju. DíaMat – félag um díalektíska efnishyggju var stofnað 2015 og var formlega skráð sem lífsskoðunarfélag 2016, með öllu sem því fylgir. Þangað til félagið hefur fengið sína eigin heimasíðu, verða samþykktir þess aðgengilegar hér.DíaMat – félag um díalektíska efnishyggjuKt: 631115-1790, bankareikningur 1110-26-001917Viðtakandi: Vésteinn ValgarðssonLögheimili: Grundarstíg 5b101 Reykjavík […]