Díalektísk stund 13. maí kl. 11:00-13:00 í Friðarhúsinu, Njálsgötu 87.
Komandi laugardag boðum við til samræðna um athafnaþjónustu á vegum DíaMat.
Dagskrá er sem stendur:
- Marxísk gildi athafnaþjónustu
- Málstofa: Skilyrði þess að verða erindreki á vegum DíaMats
- Námsefni fyrir komandi námskeið
Boðið verður upp á veitingar, aðgengi fyrir fatlaða er nokkuð en ófullkomið og allir félagar eru velkomnir, börn og fullorðnir, sem eru á annað borð húsum hæfir.