loader image

Dags

Janúarmessa & öldungaráð

Skrifað af:

Vésteinn Valgarðsson

Fimmtudaginn 25. janúar heldur DíaMat díalektíska messu janúarmánaðar. Staður: MÍR-salurinn, Hverfisgötu 105 (aðgengi fyrir hjólastóla). Stund: kl. 19:30.

Þorvaldur Þorvaldsson ræðir lærdóma af rússnesku byltingunni og leggur út af bókinni „Tíu dögum sem skóku heiminn“ eftir John Reed, sem er nýkomin út á íslensku, í þýðingu hans. Bókin verður fáanleg á staðnum fyrir áhugasama. Boðið verður upp á kaffi og þorramat!

Strax að lokinni messu hefst öldungaráðsfundur DíaMats, sem er liður í undirbúningi aðalfundar. Allir félagar mega sitja fundinn. Atkvæðisrétt hafa allir félagar sem skráðir voru í félagið fyrir 28. janúar 2017.

Deila:

Facebook
Twitter