Dags

Aðalfundur DíaMats 2026

Skrifað af:

Stjorn

Kæru félagar, 

aðalfundur DíaMats verður haldinn í fundarherbergi MÍR, Hverfisgötu 105

sunnudaginn 15. febrúar 2026 klukkan 14:00.

Gengið er inn á stigagang Hverfisgötumegin og blasir þá inngangurinn við á vinstri hönd.

Atkvæðisrétt og kjörgengi eiga allir sem skráðir eru í félagið. Hver sem hefur skráð sig eftir 1. desember 2025, þarf að sýna fundarstjóra sannindamerki þess til að hafa full réttindi á fundinum.

Boðið verður upp á veitingar. Salurinn er aðgengilegur fyrir alla og allir félagar eru velkomnir, börn og fullorðnir, sem eru á annað borð húsum hæfir.

Við gerum ráð fyrir að aðalfundur standi í tvo klukkutíma eða um það bil.

Við vekjum athygli á að á undan aðalfundi, kl. 13:00 – 14:00 er díalektísk stund, sem verður auglýst nánar er nær dregur. 

Dagskrá aðalfundar er samkvæmt lögum félagsins:  

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara,  
2. Skýrsla stjórnar um starf félagsins á starfsárinu,  
3. Reikningar félagsins lagðir fram og afgreiddir,  
4. Lagabreytingar,  
5. Kjör tveggja stjórnarmanna sem aðalfundur kýs,  
6. Kjör tveggja skoðunarmanna reikninga, sem ekki eru í stjórn,  
7. Kjör eins nýs félaga í Öldungaráð (ekki skylda),  
8. Önnur mál.  

Ég vonast til að sjá ykkur sem flest og ykkur er velkomið að taka vini og ættingja með. Vel á minnst, þið ættuð endilega að hvetja vini og ættingja til að skrá sig í félagið ef þau eru ekki þegar búin að því.

Með bestu kveðjum,

Vésteinn Valgarðsson

forstöðumaður DíaMats

Deila:

Facebook
Twitter